Hólahverfið er hernaðarlega vel staðsett !
Vissulega eru margir innflytjendur búsettir í Fellahverfinu en hver segir að þeir séu eitthvað hættulegri eða verri en annað fólk ?! Fjölmiðlar eru á móti Breiðholtinu.
Kostir Breiðholtisns eru fleiri en gallarnir.
Staðsetningin er mjög góð, mitt á milli kringlunnar og Smáralindarinnar. Rétt hjá Mjóddinni, stutt í Elliðaárdalinn, 2 góðar sundlaugar í göngufjarlægð. Einnig er mikið um að velja hvað vaðar mat, stutt í Bónus, Spar, Krónuna, Select, Hlöllabáta, Dominos, 3 bakarí eru í Efra-Breiðholtinu, sjoppur, Thai Food, Wilsons, Mini market.
Góð aðstaða hvað varðar félags-og tómstundaiðju. Fótboltavellir, tónskóli, bókasafn, félagsheimili/miðstöð(líka fyrir fatlaða), elliheimili, sambýli, endurhæfingarstöð fyrir fyrrum eiturlyfjaneytendur og kirkja svo eitthvað sé nefnt. Hárgreiðslustofur, blómabúð, fataverslun, apótek, leiksport, barnafatabúð.
Flott hverfi, vel skipulagt, falleg, frekar hreinlegt.
Frábær framhaldsskóli, grunnskólar og leikskólar.
Svo auðveldlega er hægt að segja að búa í Breiðholtinu er mjög þægilegt, stutt fjarlægð í allt sem talist getur verið nauðsynlegt og fáu hægt að kvarta undan.
Áslaug, Kristrún, Sævar, Katrín, Kristján.
Thursday, July 14, 2011
Destination Breiðholt
Vetur 2013
Ónefndur tónlistarmaður frá London kom í heimsókn og vildi fá ferð um Seljahverfið í Breiðholtinu.
Ég(Karen Sif), Kristín, Sverrir og Daníel tókum það að okkur að vera leiðsögumenn hans.
Við vöknum klukkan 8 og fáum okkur öll að borða. Svo hittumst við öll og náum í tónlistarmanninn á hótelið sitt.
Við ákveðum að byrja á því að skoða ný uppgerðu skólana í Seljahverfinu, Seljaskóla og Ölduselsskóla. Það er búið að mála skólana og gera upp leikvellina í kring og umhverfið er orðið mjög barnvænt og fallegt.
Við sjáum nokkra krakka úti í fótbolta og leika sér.
Eftir að við kláruðum að skoða skólana, fórum við og skiptum yfir í útiföt og fórum á skíði og snjóbretti í skíðabrekkunni. Það er búið að snjóa mikið síðustu daga og fullkomið veður til að skella sér út í brekku. Tónlistarmaðurinn er ekki vanur svona miklum snjó en honum fannst þetta rosalega gaman og ný upplifun.
Eftir kaldan dag fannst okkur tilvalið að skella okkur á kaffihúsið sem kom í breiðholtið fyrir 2 árum.
Það er bakarí og kaffihús sem eru sett saman í eina verslun sem heitir Kaffihúsabakaríið.
Þar hittast margir krakkar og borða saman góðan mat.
Við fórum þangað þreytt og kalt og fengum okkur að borða, heitt kakó og kleinur.
Þegar við erum búin að borða er klukkan orðin 3 og við vildum fara í sund að þrífa okkur.
Við löbbuðum af því að það er stutt frá Kaffihúsabakaríinu í sundlaugina.
Hún er líka ný og er risastór og allir aldurshópar geta notið sín í lauginni.
Það eru 3 rennibrautir í lauginni. Ein risastór, ein fyrir börn og önnur sem allir geta skemmt sér í eldri en 13.
Við skelltum okkur í heita pottinn, syntum nokkrar ferðir og fórum í þreföldu rennibrautina.
Svo fórum við á ÍR völlinn sem er nýbúið að endurbæta. Það var málað, stækkað og kominn keiluvöllur sem við fórum í. Klukkan var orðin 8 og við ætluðum að sýna honum skautasvellið í almenningsgarðinum.
Það er opið fyrir öllum og aðeins á veturna.
Þar hittum við gamla skólafélaga okkar og spjölluðum við þá í smá tíma.
Við kvöddumst um 10-hálf 11 leytið og keyrðum gestinn okkar á hótelið sitt.
Hann þakkaði okkur kærlega fyrir góðan og eftirminnilegan dag og vildi gjarnan fá að koma aftur í Seljahverfið.
Á leiðinni sáum við : fólk á göngu, bíla, hús, tré, fugla, snjó, snjókalla, jólatré.
Við heyrðum í börnum hlæja, bílunum keyra og í vindinum.
Við hittum gamla skólafélaga og frændsystkini.
Við tókum skauta, sundföt, pening, snjóbretti, skíði, auka föt og handklæði.

Leiðsögumaður!
Esther og Viktor.Leiðsögumaður.
Esther og Viktor eru að fá sameiginlegan vin í heimsókn sem langar að upplifa hverfið sitt gamla“Fellahverfi“ svo við ákváðum að hittast umm hádegi við gamla skólanum okkar “Fellaskóla“. Tókum rölt í kringum skólann þar sem ný búið er að gera hann flottari t.d. bæta við hann nýjum tækjum búið að mála, einnig er búið að færa fótbolta og körfubolta völlin og breyta þeim gamla í bílastæði. Svo kíktum við í bakaríið og fengum okkur góðgæti tókum svo stórann og langan göngutúr í kringum breiðholtið og hittum við á leiðinni gamla kunningja spjölluðum í góðann tíma og þegar klukkan var að verða margt kíktum við heim til Viktors og grilluðum svínakjöt og drukkum smá vín og töluðum saman um lífið og tilveruna .
árið 2026.
Takk!
DESTINATION BREIÐHOLT
Hvert myndir þú/þið fara og hvað myndir þú/þið gera ef þú/þið ert
A. LEIÐSÖGUMAÐUR og færð góðan gest í heimsókn sem langar að upplifa hverfið þitt í einn dag?Gesturinn gæti verið frænka frá Kanada, vinahópur úr Vesturbæ, söngvari frá London, flóttamaður frá Íran, geimverur eða borgarstjórinn.
Skipuleggið og lýsið þessum degi í hverfinu þínu/ykkar, en þetta getur ýmist verið 2011, árið 2030 eða 1950.
B. FASTEIGNASALI sem er að fara um hverfið með væntanlegan kaupanda af íbúð sem honum líst vel á og er í hverfinu þínu, en er að viss hvort hann eigi að kaupa því hann hefur heyrt að það sé svo hættulegt að búa í Breiðholtinu.
Hvenær og hvert farið þið, hvað sjáið þið, hvað heyrið þið, hvern hittið þið, hvað gerið þið, hvað takið þið með, borðið þið eitthvað yfir daginn ? osfrv. osfrv.
Farið út í hverfið - og prófið ferðina sem þið skipuleggið - finnið út hve langt er á milli ákveðinna staða - hversu mikið komist þið yfir, í hvaða röð er best að gera hlutina, af hverju viljið þið byrja hér - og enda hér? Hverju þið viljið alls ekki sleppa.
Takið myndir af stöðunum sem þið heimsækið.
Skráið ferðina niður.
Og setjið efnið upp á bloggsíðuna.
Vinnið saman í sömu hópum og síðast - en ef einhvern vill miklu frekar vinna sjálfstætt er það í lagi.
Góða skemmtun og gangi ykkur vel.
Subscribe to:
Posts (Atom)