Vetur 2013
Ónefndur tónlistarmaður frá London kom í heimsókn og vildi fá ferð um Seljahverfið í Breiðholtinu.
Ég(Karen Sif), Kristín, Sverrir og Daníel tókum það að okkur að vera leiðsögumenn hans.
Við vöknum klukkan 8 og fáum okkur öll að borða. Svo hittumst við öll og náum í tónlistarmanninn á hótelið sitt.
Við ákveðum að byrja á því að skoða ný uppgerðu skólana í Seljahverfinu, Seljaskóla og Ölduselsskóla. Það er búið að mála skólana og gera upp leikvellina í kring og umhverfið er orðið mjög barnvænt og fallegt.
Við sjáum nokkra krakka úti í fótbolta og leika sér.
Eftir að við kláruðum að skoða skólana, fórum við og skiptum yfir í útiföt og fórum á skíði og snjóbretti í skíðabrekkunni. Það er búið að snjóa mikið síðustu daga og fullkomið veður til að skella sér út í brekku. Tónlistarmaðurinn er ekki vanur svona miklum snjó en honum fannst þetta rosalega gaman og ný upplifun.
Eftir kaldan dag fannst okkur tilvalið að skella okkur á kaffihúsið sem kom í breiðholtið fyrir 2 árum.
Það er bakarí og kaffihús sem eru sett saman í eina verslun sem heitir Kaffihúsabakaríið.
Þar hittast margir krakkar og borða saman góðan mat.
Við fórum þangað þreytt og kalt og fengum okkur að borða, heitt kakó og kleinur.
Þegar við erum búin að borða er klukkan orðin 3 og við vildum fara í sund að þrífa okkur.
Við löbbuðum af því að það er stutt frá Kaffihúsabakaríinu í sundlaugina.
Hún er líka ný og er risastór og allir aldurshópar geta notið sín í lauginni.
Það eru 3 rennibrautir í lauginni. Ein risastór, ein fyrir börn og önnur sem allir geta skemmt sér í eldri en 13.
Við skelltum okkur í heita pottinn, syntum nokkrar ferðir og fórum í þreföldu rennibrautina.
Svo fórum við á ÍR völlinn sem er nýbúið að endurbæta. Það var málað, stækkað og kominn keiluvöllur sem við fórum í. Klukkan var orðin 8 og við ætluðum að sýna honum skautasvellið í almenningsgarðinum.
Það er opið fyrir öllum og aðeins á veturna.
Þar hittum við gamla skólafélaga okkar og spjölluðum við þá í smá tíma.
Við kvöddumst um 10-hálf 11 leytið og keyrðum gestinn okkar á hótelið sitt.
Hann þakkaði okkur kærlega fyrir góðan og eftirminnilegan dag og vildi gjarnan fá að koma aftur í Seljahverfið.
Á leiðinni sáum við : fólk á göngu, bíla, hús, tré, fugla, snjó, snjókalla, jólatré.
Við heyrðum í börnum hlæja, bílunum keyra og í vindinum.
Við hittum gamla skólafélaga og frændsystkini.
Við tókum skauta, sundföt, pening, snjóbretti, skíði, auka föt og handklæði.
No comments:
Post a Comment