Fellahverfi og Bakkarnir
Í þessu hverfi eru margar verslanir ..
t.d. bakarí , sjoppa ,matvoruverslun(minimarket).
Minimarket var áðurfyrr 11-11 , þetta er pólsk búð sem selur mikið af pólskum vörum, það kemur mikið af fólki þangað en afgreiðslufólkið mætti samt alveg læra íslensku þar sem þau tala ekki mikið af henni
king kong: krakkar hittast þarna, eftir skola , í "fríminotum" ,
með þeim fínum sjoppum gaman að verlsa þarna starfsfólkið yndislegt en útlitslegaséð mætti mála og gera fínna :Þ.
Bakarí.
skemmtilegur venjulegur bakarís staður , afgreiðslufólk á öllum aldri
kokkurinn voða skemmtilegur kemur stundum og talar við viðskiptavinina voða kósý !
fólk á öllum aldri sækir viðskipti þarna .
voða snyrtilegt bakarí .
wilsons pizza.
skemmtilegur staður þar sem krakkar hittast og hanga oft á sumrin
ágætar pizzur þarna .. skemmtilegt umhverfi :)
það sem mætti gera við staðinn/staðina , mála veggina (skítugir) bæta við fleirum blómum og svona .. alltof mikið af bílastæðum .. og mætti vera litríkara .
Arnarbakki
Núna í dag er 10-11,fiskbúð,hárgreiðslustofa,saumakona og bakari. Þegar ég(Hófý) var litil þá var sjoppa þarna það var staðurinn sem allir unglingarnir hittustá á kvöldin. Það fara flestir útí"sjoppu" í fríminutum þegar Breiðholtsskóli er starfandi.
A.. Þessi staður er orðin frekar óaðlagandi krot á veggjum, flögnuð málning og já.. það þarf að fara að laga staðinn. Koma aftur með sjoppuna,pítsastaðinn og reyna að fá gömlu góðu stemminguna aftur=)
B.. Það er skóli þarna, íbúðarhús,bílastæði og leikvöllur/leikskóli. Það mætti vera meiri umgangur þarna!! Koma með ódýrari búð!!
Friday, June 24, 2011
Verslunarkjarni-hólagaður og miðberg
Verslanir og fl. í Hólagarði: Bónus, snyrtivöruverslunin Nana, barnafataverslunin Krútt, íþróttaverslunin Leiksport, Dominos og skrifstofur þeirra, Thai food, Snyrtibankinn, Hlöllabátar, Klippistofan Ýr, 4dots, Álfurinn, Sveinsbakarí, Bónusvídeó, fatahreinsunin Efnalaug, Fætur og fegurð, apóteki, naglafegurð.
- Útlitið er hvorki fráhrindandi né aðlaðandi, og sker sig lítið úr umhverfinu þannig lagað sé. Bílastæðið er ágætt og rúmgott. Gott jafnvægi er á milli verslana. Lítið svigrúm fyrir breytingar.
- Hreingerningar eru alltaf vel þegnar, en annars er svæðið ágætt.
- Verslanirnar njóta góðs af því að Bónus dragi að sér viðskiptavini með því að vera ódýrasta verslunin í Breiðholtinu.
Verslanir og fl. í miðbergi: Heilsugæslustoð, nikka bar, tónskóli, félagsmiðstöð, sjoppa, bókasafn, sund, hagabakarí, hárgreiðslustofa, tannlæknastofa, ljósastofa, AA-fundir, Afl og orka,íþróttamiðstöð.
- Uppsetningin á staðnum er mjög aðlaðandi en ástandið á umhverfinu er einstaklega ábótavant.
- Það sem mætti bæta við er gott kaffihús, betri setuaðstaða, veitingastað, meiri afþreyingu og hreingerningu (þ.á.m. fjarlægja styttuna og barinn)
- Aldurshópurinn er mjög víður.
- Kv. Sævar, kristrún, Katrín, Kristján, Ása.
Selin
24.júní 10:45-11:30 - á bíl
Karen Sif, Kristín Ýr, Sverrir og Daníel
Þín verslun
A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn
Við komum keyrandi að versluninni og lögðum beint fyrir utan. Við sátum í bílnum og gerðum okkur grein fyrir umhverfinu og búðinni sjálfri.
Þín verslun er lítil hverfisbúð í Seljahverfinu. Margt fólk sem býr í hverfinu kemur hingað þrátt fyrir hátt verð á vörunum. Ástæðan er líklega hráefnið sem selt er þar. Kjötborðið er framúrskarandi og alltaf ferskt.
Margir af starfsmönnum verslunarinnar eru búnir að vinna þar í fleiri fleiri ár og hverfisbúar þekkja þá vel.
Einnig eru mikið af ungum krökkum sem starfa í búðinni.
Búðin er mjög skipulögð og vörurnar eru staðsettar undir stórum skiltum með tegundum matvælanna.
Gallarnir við búðina eru þeir að það er oft mjög kalt þarna inni og gangarnir eru frekar þröngir og rúma ekki marga í einu.
Loftið mætti vera flottara líka.
Litirnir sem einkenna búðina eru blár, gulur og rauður. Þeir falla nokkurn veginn inn í umhverfið og eru ekki of áberandi. Bílastæðið er passlegt, í minni kantinum þó. Umhverfið í kring er snyrtilegt.
Rétt hjá er leikvöllur fyrir ung börn og fótboltavöllur aðeins lengra frá, sem mætti vera snyrtilegri.
Okkur fnnst vanta bekki og fallegan gróður í kring.
Beint við hliðina á búðinni er sjoppa sem heitir Þristurinn. Hún er rekin af fjölskyldu og magir koma við í þessa sjoppu.
Krónan
A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn
Það er mjög mikill munur á þessum tveimur verslunarkjörnum, því krónan er verslunarkeðja og mun stærri.
Bílastæðið þar er of lítið og þröngt fyrir umferðina sem er í Breiðholtinu og miðað við hversu margir sækja að versla í Krónunni. Sorpa er líka við hliðina á sem gerir umhverfið frekar ósnyrtilegt.
Engir bekkir sjást í kring, en það er aðstaða fyrir innkaupakerrur og hjól fyrir utan búðina. Einnig eru tveir gráir steinklumpar sitt hvoru megin við innganginn, sem við sjáum engan tilgang í.
Ruslagámur Krónunnar er líka of áberandi við hliðina á.
Það er bílaverkstæði MAX1 sem er í húsinu við hliðina á og einnig tómt húsnæði sem áður var aðalsjoppa hverfisins en hún hætti rekstri því bílafyrirtækið vildi stækka við sig.
Hinum megin við Krónuna er fótboltavöllur og fyrir aftan er skíðabrekka og hjólabrettapallur.
Útlitið á búðinni er gult en þó ekki eins gult og hjá Bónus, það er smekklegra. Verðið er passlegt, en sjaldan tilboð fyrir utan afslátt á nammi á laugardögum.

FYRSTI HLUTI: GREINING / KORTLAGNING HVERFISKJARNA
Farið í vettvangsferðina með opnum huga og vakandi fyrir því sem kemur ykkur á óvart og vekur sérstakan áhuga ykkar. Að neðan eru þættir sem þið getið haft í huga - þetta eru samt ekki leiðbeiningar sem þið þurfið að fylgja lið fyrir lið. En mikilvægt að þið hafið í huga hvenær þið eruð að leggja mat á hlutina, deila reynslu ykkar og upplifunum og hvenær þið eruð að skrásetja hlutlægt.
A. HUGLÆGT MAT, REYNSLA, SÖGUR, FRÁSÖGN
Hvernig finnst þér/ykkur, hvað eruð þið að upplifa, hvaða sögur getið þið sagt frá þessum herfiskjarna. Hvað finnst ykkur spennandi/óspennandi, fallegt/ljótt, aðlaðandi/fráhrindandi, osfrv. Munið að þið eruð sérfræðingarnir og þekkið kjarnana vel.
Þið getið einnig skráð reynslu annarra - og tekið viðtöl/spurt aðra, t.d. fólk sem vinnur í hverfiskjörnum eða þá sem eru að sækja þjónustu þangað:
Hvað finnst viðmælendum ykkar - geta þeir sagt ykkur af reynslu sinni/sögum úr kjörnunum.
B. SKRÁNING
FLÆÐI FÓLKS, Hversu margir, hve gamlir, hvað er fólk að gera (sitja á bekk, versla, leggja bíl, ganga/hjóla í gegn)
UMHVERFI, LITIR, FORM Hvernig eru húsin, umhverfið og útsýnið í kring? Litir, form, stærð ástand. Hús, bekkir, bílastæði, göngustígar, gróður, blómaker osfrv.
STARFSEMI, VÖRUR OG ÞJÓNUSTA, hvaða starfsemi er í kjarnanum og kringum hann: Verslanir,vörur, verð, önnur starfsemi og afþreying, leikvellir, íþróttavellir osfrv.
SKRIFIÐ NIÐUR
TAKIÐ MYNDIR
TEIKNIÐ KORT/MYNDIR
SKRÁIÐ EINNIG NIÐUR HVENÆR Þið farið í vettfangsferð, hve lengi og hvernig þið farið: gangandi, á hjóli osfrv.
GANGI YKKUR VEL...

HVERFISKJARNAR BREIÐHOLTS
Verslunarmiðstöðvar og nærumhverfi þeirra eru hverfiskjarnar sem gegna margþættu hlutverki í Breiðholtinu. Þar leynast mörg ónýtt og ókönnuð tækifæri – og verðmæti sem vert er að kafa dýpra ofan í: Okkur langar að fá ykkur í lið með okkur að endurhugsa kjarnana - sem getur verið lykill að endursköpun þeirra.
Með því að skoða hverfiskjarnana er hægt að varpa upp mynd af því :
Hver sérstaða þeirra og sérkenni eru – og hver þau gætu verið
Hvernig þeir eru notaðir - og hvernig þeir gætu verið notaðir
Hvaða hlutverki þeir gegna í dag – og hvaða hlutverki þeir gætu gegnt
Hvaða áhrif íbúar hafa á þá – og hvaða áhrif íbúarnir gætu haft

Subscribe to:
Posts (Atom)