24.júní 10:45-11:30 - á bíl
Karen Sif, Kristín Ýr, Sverrir og Daníel
Þín verslun
A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn
Við komum keyrandi að versluninni og lögðum beint fyrir utan. Við sátum í bílnum og gerðum okkur grein fyrir umhverfinu og búðinni sjálfri.
Þín verslun er lítil hverfisbúð í Seljahverfinu. Margt fólk sem býr í hverfinu kemur hingað þrátt fyrir hátt verð á vörunum. Ástæðan er líklega hráefnið sem selt er þar. Kjötborðið er framúrskarandi og alltaf ferskt.
Margir af starfsmönnum verslunarinnar eru búnir að vinna þar í fleiri fleiri ár og hverfisbúar þekkja þá vel.
Einnig eru mikið af ungum krökkum sem starfa í búðinni.
Búðin er mjög skipulögð og vörurnar eru staðsettar undir stórum skiltum með tegundum matvælanna.
Gallarnir við búðina eru þeir að það er oft mjög kalt þarna inni og gangarnir eru frekar þröngir og rúma ekki marga í einu.
Loftið mætti vera flottara líka.
Litirnir sem einkenna búðina eru blár, gulur og rauður. Þeir falla nokkurn veginn inn í umhverfið og eru ekki of áberandi. Bílastæðið er passlegt, í minni kantinum þó. Umhverfið í kring er snyrtilegt.
Rétt hjá er leikvöllur fyrir ung börn og fótboltavöllur aðeins lengra frá, sem mætti vera snyrtilegri.
Okkur fnnst vanta bekki og fallegan gróður í kring.
Beint við hliðina á búðinni er sjoppa sem heitir Þristurinn. Hún er rekin af fjölskyldu og magir koma við í þessa sjoppu.
Krónan
A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn
Það er mjög mikill munur á þessum tveimur verslunarkjörnum, því krónan er verslunarkeðja og mun stærri.
Bílastæðið þar er of lítið og þröngt fyrir umferðina sem er í Breiðholtinu og miðað við hversu margir sækja að versla í Krónunni. Sorpa er líka við hliðina á sem gerir umhverfið frekar ósnyrtilegt.
Engir bekkir sjást í kring, en það er aðstaða fyrir innkaupakerrur og hjól fyrir utan búðina. Einnig eru tveir gráir steinklumpar sitt hvoru megin við innganginn, sem við sjáum engan tilgang í.
Ruslagámur Krónunnar er líka of áberandi við hliðina á.
Það er bílaverkstæði MAX1 sem er í húsinu við hliðina á og einnig tómt húsnæði sem áður var aðalsjoppa hverfisins en hún hætti rekstri því bílafyrirtækið vildi stækka við sig.
Hinum megin við Krónuna er fótboltavöllur og fyrir aftan er skíðabrekka og hjólabrettapallur.
Útlitið á búðinni er gult en þó ekki eins gult og hjá Bónus, það er smekklegra. Verðið er passlegt, en sjaldan tilboð fyrir utan afslátt á nammi á laugardögum.
Karen Sif, Kristín Ýr, Sverrir og Daníel
No comments:
Post a Comment