Farið í vettvangsferðina með opnum huga og vakandi fyrir því sem kemur ykkur á óvart og vekur sérstakan áhuga ykkar. Að neðan eru þættir sem þið getið haft í huga - þetta eru samt ekki leiðbeiningar sem þið þurfið að fylgja lið fyrir lið. En mikilvægt að þið hafið í huga hvenær þið eruð að leggja mat á hlutina, deila reynslu ykkar og upplifunum og hvenær þið eruð að skrásetja hlutlægt.
A. HUGLÆGT MAT, REYNSLA, SÖGUR, FRÁSÖGN
Hvernig finnst þér/ykkur, hvað eruð þið að upplifa, hvaða sögur getið þið sagt frá þessum herfiskjarna. Hvað finnst ykkur spennandi/óspennandi, fallegt/ljótt, aðlaðandi/fráhrindandi, osfrv. Munið að þið eruð sérfræðingarnir og þekkið kjarnana vel.
Þið getið einnig skráð reynslu annarra - og tekið viðtöl/spurt aðra, t.d. fólk sem vinnur í hverfiskjörnum eða þá sem eru að sækja þjónustu þangað:
Hvað finnst viðmælendum ykkar - geta þeir sagt ykkur af reynslu sinni/sögum úr kjörnunum.
B. SKRÁNING
FLÆÐI FÓLKS, Hversu margir, hve gamlir, hvað er fólk að gera (sitja á bekk, versla, leggja bíl, ganga/hjóla í gegn)
UMHVERFI, LITIR, FORM Hvernig eru húsin, umhverfið og útsýnið í kring? Litir, form, stærð ástand. Hús, bekkir, bílastæði, göngustígar, gróður, blómaker osfrv.
STARFSEMI, VÖRUR OG ÞJÓNUSTA, hvaða starfsemi er í kjarnanum og kringum hann: Verslanir,vörur, verð, önnur starfsemi og afþreying, leikvellir, íþróttavellir osfrv.
SKRIFIÐ NIÐUR
TAKIÐ MYNDIR
TEIKNIÐ KORT/MYNDIR
SKRÁIÐ EINNIG NIÐUR HVENÆR Þið farið í vettfangsferð, hve lengi og hvernig þið farið: gangandi, á hjóli osfrv.
GANGI YKKUR VEL...
No comments:
Post a Comment