Thursday, July 14, 2011

Fasteignasali - Hólahverfi

Hólahverfið er hernaðarlega vel staðsett !
Vissulega eru margir innflytjendur búsettir í Fellahverfinu en hver segir að þeir séu eitthvað hættulegri eða verri en annað fólk ?!  Fjölmiðlar eru á móti Breiðholtinu.
Kostir Breiðholtisns eru fleiri en gallarnir.
Staðsetningin er mjög góð, mitt á milli kringlunnar og Smáralindarinnar. Rétt hjá Mjóddinni, stutt í Elliðaárdalinn, 2 góðar sundlaugar í göngufjarlægð. Einnig er mikið um að velja hvað vaðar mat, stutt í Bónus, Spar, Krónuna, Select, Hlöllabáta, Dominos, 3 bakarí eru í Efra-Breiðholtinu, sjoppur, Thai Food, Wilsons, Mini market.
Góð aðstaða hvað varðar félags-og tómstundaiðju. Fótboltavellir, tónskóli, bókasafn, félagsheimili/miðstöð(líka fyrir fatlaða), elliheimili, sambýli, endurhæfingarstöð fyrir fyrrum eiturlyfjaneytendur og kirkja svo eitthvað sé nefnt. Hárgreiðslustofur, blómabúð, fataverslun, apótek, leiksport, barnafatabúð.
Flott hverfi, vel skipulagt, falleg, frekar hreinlegt.
Frábær framhaldsskóli, grunnskólar og leikskólar.
Svo auðveldlega er hægt að segja að búa í Breiðholtinu er mjög þægilegt, stutt fjarlægð í allt sem talist getur verið nauðsynlegt og fáu hægt að kvarta undan.

Áslaug, Kristrún, Sævar, Katrín, Kristján.

Destination Breiðholt

Vetur 2013

Ónefndur tónlistarmaður frá London kom í heimsókn og vildi fá ferð um Seljahverfið í Breiðholtinu.
Ég(Karen Sif), Kristín, Sverrir og Daníel tókum það að okkur að vera leiðsögumenn hans.


Við vöknum klukkan 8 og fáum okkur öll að borða. Svo hittumst við öll og náum í tónlistarmanninn á hótelið sitt.
Við ákveðum að byrja á því að skoða ný uppgerðu skólana í Seljahverfinu, Seljaskóla og Ölduselsskóla. Það er búið að mála skólana og gera upp leikvellina í kring og umhverfið er orðið mjög barnvænt og fallegt.
Við sjáum nokkra krakka úti í fótbolta og leika sér.
Eftir að við kláruðum að skoða skólana, fórum við og skiptum yfir í útiföt og fórum á skíði og snjóbretti í skíðabrekkunni. Það er búið að snjóa mikið síðustu daga og fullkomið veður til að skella sér út í brekku. Tónlistarmaðurinn er ekki vanur svona miklum snjó en honum fannst þetta rosalega gaman og ný upplifun.
Eftir kaldan dag fannst okkur tilvalið að skella okkur á kaffihúsið sem kom í breiðholtið fyrir 2 árum.
Það er bakarí og kaffihús sem eru sett saman í eina verslun sem heitir Kaffihúsabakaríið.
Þar hittast margir krakkar og borða saman góðan mat.
Við fórum þangað þreytt og kalt og fengum okkur að borða, heitt kakó og kleinur.
Þegar við erum búin að borða er klukkan orðin 3 og við vildum fara í sund að þrífa okkur.
Við löbbuðum af því að það er stutt frá Kaffihúsabakaríinu í sundlaugina.
Hún er líka ný og er risastór og allir aldurshópar geta notið sín í lauginni.
Það eru 3 rennibrautir í lauginni. Ein risastór, ein fyrir börn og önnur sem allir geta skemmt sér í eldri en 13.
Við skelltum okkur í heita pottinn, syntum nokkrar ferðir og fórum í þreföldu rennibrautina.
Svo fórum við á ÍR völlinn sem er nýbúið að endurbæta. Það var málað, stækkað og kominn keiluvöllur sem við fórum í. Klukkan var orðin 8 og við ætluðum að sýna honum skautasvellið í almenningsgarðinum.
Það er opið fyrir öllum og aðeins á veturna.
Þar hittum við gamla skólafélaga okkar og spjölluðum við þá í smá tíma.
Við kvöddumst um 10-hálf 11 leytið og keyrðum gestinn okkar á hótelið sitt.
Hann þakkaði okkur kærlega fyrir góðan og eftirminnilegan dag og vildi gjarnan fá að koma aftur í Seljahverfið.

Á leiðinni sáum við : fólk á göngu, bíla, hús, tré, fugla, snjó, snjókalla, jólatré.
Við heyrðum í börnum hlæja, bílunum keyra og í vindinum.
Við hittum gamla skólafélaga og frændsystkini.
Við tókum skauta, sundföt, pening, snjóbretti, skíði, auka föt og handklæði.

Leiðsögumaður!

Esther og Viktor.Leiðsögumaður.
Esther og Viktor eru að fá sameiginlegan vin í heimsókn sem langar að upplifa hverfið sitt gamla“Fellahverfi“ svo við ákváðum að hittast umm hádegi við gamla skólanum okkar “Fellaskóla“. Tókum rölt í kringum skólann þar sem ný búið er að gera hann flottari t.d. bæta við hann nýjum tækjum búið að mála, einnig er búið að færa fótbolta og körfubolta völlin og breyta þeim gamla í bílastæði. Svo kíktum við í bakaríið og fengum okkur góðgæti tókum svo stórann og langan göngutúr í kringum breiðholtið og hittum við á leiðinni gamla kunningja spjölluðum í góðann tíma og þegar klukkan var að verða margt kíktum við heim til Viktors og grilluðum svínakjöt og drukkum smá vín og töluðum saman um lífið og tilveruna .
árið 2026.

Takk!

DESTINATION BREIÐHOLT


Hvert myndir þú/þið fara og hvað myndir þú/þið gera ef þú/þið ert

A. LEIÐSÖGUMAÐUR og færð góðan gest í heimsókn sem langar að upplifa hverfið þitt í einn dag?Gesturinn gæti verið frænka frá Kanada, vinahópur úr Vesturbæ, söngvari frá London, flóttamaður frá Íran, geimverur eða borgarstjórinn.
Skipuleggið og lýsið þessum degi í hverfinu þínu/ykkar, en þetta getur ýmist verið 2011, árið 2030 eða 1950.

B. FASTEIGNASALI 
sem er að fara um hverfið með væntanlegan kaupanda af íbúð sem honum líst vel á og er í hverfinu þínu, en er að viss hvort hann eigi að kaupa því hann hefur heyrt að það sé svo hættulegt að búa í Breiðholtinu.




Hvenær og hvert farið þið, hvað sjáið þið, hvað heyrið þið, hvern hittið þið, hvað gerið þið, hvað takið þið með, borðið þið eitthvað yfir daginn ? osfrv. osfrv.
Farið út í hverfið - og prófið ferðina sem þið skipuleggið - finnið út hve langt er á milli ákveðinna staða - hversu mikið komist þið yfir, í hvaða röð er best að gera hlutina, af hverju viljið þið byrja hér - og enda hér? Hverju þið viljið alls ekki sleppa.
Takið myndir af stöðunum sem þið heimsækið.
Skráið ferðina niður.
Og setjið efnið upp á bloggsíðuna.



Vinnið saman í sömu hópum og síðast - en ef einhvern vill miklu frekar vinna sjálfstætt er það í lagi.

Góða skemmtun og gangi ykkur vel.

Friday, June 24, 2011

Fellahverfi og Bakkarnir

Í þessu hverfi eru margar verslanir ..
t.d. bakarí , sjoppa ,matvoruverslun(minimarket).
Minimarket var áðurfyrr 11-11 , þetta er pólsk búð sem selur mikið af pólskum vörum, það kemur mikið af fólki þangað en afgreiðslufólkið mætti samt alveg læra íslensku þar sem þau tala ekki mikið af henni


king kong: krakkar hittast þarna, eftir skola , í "fríminotum" ,
með þeim fínum sjoppum gaman að verlsa þarna starfsfólkið yndislegt en útlitslegaséð mætti mála og gera fínna :Þ.

Bakarí.
skemmtilegur venjulegur bakarís staður , afgreiðslufólk á öllum aldri
kokkurinn voða skemmtilegur kemur stundum og talar við viðskiptavinina voða kósý !
fólk á öllum aldri sækir viðskipti þarna .
voða snyrtilegt bakarí .

wilsons pizza.
skemmtilegur staður þar sem krakkar hittast og hanga oft á sumrin
ágætar pizzur þarna .. skemmtilegt umhverfi :)


það sem mætti gera við staðinn/staðina , mála veggina (skítugir) bæta við fleirum blómum og svona .. alltof mikið af bílastæðum .. og mætti vera litríkara .

Arnarbakki

Núna í dag er 10-11,fiskbúð,hárgreiðslustofa,saumakona og bakari. Þegar ég(Hófý) var litil þá var sjoppa þarna það var staðurinn sem allir unglingarnir hittustá á kvöldin. Það fara flestir útí"sjoppu" í fríminutum þegar Breiðholtsskóli er starfandi.
A.. Þessi staður er orðin frekar óaðlagandi krot á veggjum, flögnuð málning og já.. það þarf að fara að laga staðinn. Koma aftur með sjoppuna,pítsastaðinn og reyna að fá gömlu góðu stemminguna aftur=)
B.. Það er skóli þarna, íbúðarhús,bílastæði og leikvöllur/leikskóli. Það mætti vera meiri umgangur þarna!! Koma með ódýrari búð!!

Verslunarkjarni-hólagaður og miðberg

Verslanir og fl. í Hólagarði: Bónus, snyrtivöruverslunin Nana, barnafataverslunin Krútt, íþróttaverslunin Leiksport, Dominos og skrifstofur þeirra, Thai food, Snyrtibankinn, Hlöllabátar, Klippistofan Ýr, 4dots, Álfurinn, Sveinsbakarí, Bónusvídeó, fatahreinsunin Efnalaug, Fætur og fegurð, apóteki, naglafegurð.
  • Útlitið er hvorki fráhrindandi né aðlaðandi, og sker sig lítið úr umhverfinu þannig lagað sé. Bílastæðið er ágætt og rúmgott. Gott jafnvægi er á milli verslana. Lítið svigrúm fyrir breytingar.
  • Hreingerningar eru alltaf vel þegnar, en annars er svæðið ágætt.
  • Verslanirnar njóta góðs af því að Bónus dragi að sér viðskiptavini með því að vera ódýrasta verslunin í Breiðholtinu.
  Verslanir og fl. í miðbergi: Heilsugæslustoð, nikka bar, tónskóli, félagsmiðstöð, sjoppa, bókasafn, sund, hagabakarí, hárgreiðslustofa, tannlæknastofa, ljósastofa, AA-fundir, Afl og orka,íþróttamiðstöð.
  • Uppsetningin á staðnum er mjög aðlaðandi en ástandið á umhverfinu er einstaklega ábótavant.
  • Það sem mætti bæta við er gott kaffihús, betri setuaðstaða, veitingastað, meiri afþreyingu og hreingerningu (þ.á.m. fjarlægja styttuna og barinn)
  • Aldurshópurinn er mjög víður.
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  • Kv. Sævar, kristrún, Katrín, Kristján, Ása.

Selin

24.júní 10:45-11:30 - á bíl
Karen Sif, Kristín Ýr, Sverrir og Daníel


Þín verslun

A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn

Við komum keyrandi að versluninni og lögðum beint fyrir utan. Við sátum í bílnum og gerðum okkur grein fyrir umhverfinu og búðinni sjálfri.
             Þín verslun er lítil hverfisbúð í Seljahverfinu. Margt fólk sem býr í hverfinu kemur hingað þrátt fyrir hátt verð á vörunum. Ástæðan er líklega hráefnið sem selt er þar. Kjötborðið er framúrskarandi og alltaf ferskt.
Margir af starfsmönnum verslunarinnar eru búnir að vinna þar í fleiri fleiri ár og hverfisbúar þekkja þá vel.

Einnig eru mikið af ungum krökkum sem starfa í búðinni.
Búðin er mjög skipulögð og vörurnar eru staðsettar undir stórum skiltum með tegundum matvælanna.
Gallarnir við búðina eru þeir að það er oft mjög kalt þarna inni og gangarnir eru frekar þröngir og rúma ekki marga í einu.
Loftið mætti vera flottara líka.

             Litirnir sem einkenna búðina eru blár, gulur og rauður. Þeir falla nokkurn veginn inn í umhverfið og eru ekki of áberandi. Bílastæðið er passlegt, í minni kantinum þó. Umhverfið í kring er snyrtilegt. 
Rétt hjá er leikvöllur fyrir ung börn og fótboltavöllur aðeins lengra frá, sem mætti vera snyrtilegri.
Okkur fnnst vanta bekki og fallegan gróður í kring.
Beint við hliðina á búðinni er sjoppa sem heitir Þristurinn. Hún er rekin af fjölskyldu og magir koma við í þessa sjoppu. 



Krónan

A. Huglægt mat, reynsla, sögur, frásögn

Það er mjög mikill munur á þessum tveimur verslunarkjörnum, því krónan er verslunarkeðja og mun stærri.
Bílastæðið þar er of lítið og þröngt fyrir umferðina sem er í Breiðholtinu og miðað við hversu margir sækja að versla í Krónunni. Sorpa er líka við hliðina á sem gerir umhverfið frekar ósnyrtilegt.
Engir bekkir sjást í kring, en það er aðstaða fyrir innkaupakerrur og hjól fyrir utan búðina. Einnig eru tveir gráir steinklumpar sitt hvoru megin við
innganginn, sem við sjáum engan tilgang í.
Ruslagámur Krónunnar er líka of áberandi við hliðina á.
         Það er bílaverkstæði MAX1 sem er í húsinu við hliðina á og einnig tómt húsnæði sem áður var aðalsjoppa hverfisins en hún hætti rekstri því bílafyrirtækið vildi stækka við sig.
Hinum megin við Krónuna er fótboltavöllur og fyrir aftan er skíðabrekka og hjólabrettapallur.
Útlitið á búðinni er gult en þó ekki eins gult og hjá Bónus, það er smekklegra. Verðið er passlegt, en sjaldan tilboð fyrir utan afslátt á nammi á laugardögum.




Karen Sif, Kristín Ýr, Sverrir og Daníel

FYRSTI HLUTI: GREINING / KORTLAGNING HVERFISKJARNA

Farið í vettvangsferðina með opnum huga og vakandi fyrir því sem kemur ykkur á óvart og vekur sérstakan áhuga ykkar. Að neðan eru þættir sem þið getið haft í huga  - þetta eru samt ekki leiðbeiningar  sem þið þurfið að fylgja lið fyrir lið. En mikilvægt að þið hafið í  huga  hvenær þið eruð að leggja mat á hlutina, deila reynslu ykkar og upplifunum og hvenær þið eruð að skrásetja hlutlægt.

A. HUGLÆGT MAT, REYNSLA, SÖGUR, FRÁSÖGN
Hvernig finnst þér/ykkur, hvað eruð þið að upplifa, hvaða sögur getið þið sagt frá þessum herfiskjarna. Hvað finnst ykkur spennandi/óspennandi, fallegt/ljótt, aðlaðandi/fráhrindandi, osfrv.  Munið að þið eruð sérfræðingarnir og þekkið kjarnana vel.

Þið getið einnig skráð reynslu annarra - og tekið viðtöl/spurt aðra, t.d. fólk sem vinnur í hverfiskjörnum eða þá sem eru að sækja þjónustu þangað:
Hvað finnst viðmælendum ykkar - geta þeir sagt ykkur af reynslu sinni/sögum úr kjörnunum.

B. SKRÁNING
FLÆÐI FÓLKS, Hversu margir, hve gamlir, hvað er fólk að gera (sitja á bekk, versla, leggja bíl, ganga/hjóla í gegn)

UMHVERFI, LITIR, FORM Hvernig eru húsin, umhverfið og útsýnið í kring? Litir, form, stærð ástand. Hús, bekkir, bílastæði, göngustígar, gróður, blómaker osfrv.

STARFSEMI, VÖRUR OG ÞJÓNUSTA, hvaða starfsemi er í kjarnanum og kringum hann: Verslanir,vörur, verð, önnur starfsemi og afþreying,  leikvellir, íþróttavellir osfrv.

SKRIFIÐ NIÐUR
TAKIÐ MYNDIR
TEIKNIÐ KORT/MYNDIR


SKRÁIÐ EINNIG NIÐUR HVENÆR Þið farið í vettfangsferð, hve lengi og hvernig þið farið: gangandi, á hjóli osfrv.



GANGI YKKUR VEL...

HVERFISKJARNAR BREIÐHOLTS

Verslunarmiðstöðvar og nærumhverfi þeirra eru hverfiskjarnar sem gegna margþættu hlutverki í Breiðholtinu. Þar leynast mörg ónýtt og ókönnuð tækifæri – og verðmæti sem vert er að kafa dýpra ofan í: Okkur langar að fá ykkur í lið með okkur að endurhugsa kjarnana - sem getur verið lykill að endursköpun þeirra.

Með því að skoða hverfiskjarnana er hægt að varpa upp mynd af því :

Hver sérstaða þeirra og sérkenni eru – og hver þau gætu verið
Hvernig þeir eru notaðir - og  hvernig þeir gætu verið notaðir 
Hvaða hlutverki þeir gegna í dag – og hvaða hlutverki þeir gætu gegnt
Hvaða áhrif íbúar hafa á þá – og hvaða áhrif íbúarnir gætu haft